Quantcast
Channel: Kimi Records » Releases
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10

Dream Central Station

$
0
0

Hljómsveitin Dream Central Station hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu, samnefnda sveitinni. Hljómsveitin er skipuð þeim Hallbergi Daða Hallbergssyni og Elsu Maríu Blöndal en þau hafa verið að vinna að plötunni undanfarin ár. Hallberg gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Jakobínurínu á sínum tíma en Elsa hefur starfað með hljómsveitinni The Go Go Darkness.

Dream Central Station er 10 laga plata þar sem hægt og svalt rokk er leyst úr læðingi, rokk sem er iðulega líkt við shoegaze. Framreiðsla fellur innan formsins en nálgun Dream Central Station er þó bæði fjölbreytt og frumleg, einkar þegar kemur að röddun og lagasmíðum. Öll lög og textar eru eftir Hallberg Daða nema að á plötunni er að finna ábreiðu af laginu Feel so Good með Brian Jonestown Massacre.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10

Latest Images

Trending Articles





Latest Images