Quantcast
Channel: Kimi Records » Releases
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10

Þórir Georg – Afmæli

$
0
0

Tónlistarmaðurinn Þórir Georg var að senda frá sér lagið Afmæli og fæst það einungis á Gogoyoko fyrst um sinn. Lagið er að finna á væntanlegri breiðskífu hans, I Will Die and You Will Die and it Will be Alright, sem kemur út í lok október hjá Kimi Records. Lagið er tilraun Þóris til að semja hið klassíska ástarbréf til eiginkonu sinnar og varð til á afmælisdegi hennar, 4. september 2011, er Þórir beið eftir að hún kæmi heim úr vinnunni. Á smáskífunni er að auki að finna b-hliðar lagið Aldrei sem og fyrstu upptöku Þóris á Afmæli.
I Will Die and You Will Die and it Will be Alright kemur einnig út í Þýskalandi í samstarfi við Stargazer Records í tengslum við tónleikaferð Þóris þar í landi. Hún er alfarið tekin upp og unnin af Þóri sjálfum, allt frá hljóðblöndun til umslagshönnunar. Platan inniheldur níu gítarrokklög af ýmsum toga og sækir innblástur víða að, meðal annars frá Sun Kil Moon, Bonnie Prince Billy og Chad VanGaalen.
Þórir Georg starfaði áður undir heitinu My Summer as a Salvation Soldier og hefur gefið út fjölmargar plötur. Hann hefur einnig starfrækt hljómsveitirnar Gavin Portland, Ofvitarnir og Deathmetal Supersquad meðal annarra.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10

Latest Images

Trending Articles





Latest Images